Við viljum þakka viðskiptavinum okkar fyrir árið sem er að líða og frábærarar móttökur á okkar fyrsta ári. Við viljum gefa ykkur smá upplýsingar um rekstur Ofurkaupa á árinu 2023. Takk aftur fyrir að styðja við okkur á árinu, þið hjálpið okkur að stækka, fjölga vörum og bæta úrvalið.
26.mars er lénið Ofurkaup.is var keypt
23.apríl fer netverslunin Ofurkaup.is í loftið og fyrstu pantanirnar komu sama dag
26.nóvember var stærsti söludagur ársins
15.desember fluttum við í betra húsnæði og erum nú með betri aðstöðu fyrir lagerinn. Bættum þjónustuna okkar með því að bjóða að sækja frítt á mánudögum á milli 17:00 og 19:00 í Skipholt 35.
29.desember var nafni félagsins sem rekur Ofurkaup.is breytt í Ofurkaup ehf.
🖥️ Yfir 180.000 smellir á Ofurkaup.is á árinu
🧑 yfir 50.000 heimsóknir á Ofurkaup.is á árinu
🛒 yfir 1.700 vörur seldar á árinu
📦 yfir 1.000 pantanir á árinu (um 1.000 ánægðir viðskiptavinir)
🛍️ Yfir 100 vörunúmer í netverslun okkar á árinu
Gleðilegt nýtt ár!