Persónuverndarstefna
Meðferð persónuupplýsinga · Útgáfa 1.0 · Síðast uppfært 1. október 2026
Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingum Ofurkaup safnar, í hvaða tilgangi, hverjir fá þær og hvaða rétt þú hefur. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).
1. Ábyrgðaraðili
Ofurkaup ehf., kt. 460616-0690, Smáratorg 3, 201 Kópavogi, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á ofurkaup.is. Fyrirspurnir um persónuvernd: info@ofurkaup.is.
2. Hvaða upplýsingum við söfnum
Kaupendur: netfang, kaupsaga, gjafabréf og staða þeirra (hvort og hvenær þau voru innleyst) og samskipti við þjónustuver. Ef vara er send heim: nafn viðtakanda, heimilisfang og símanúmer.
Greiðslur: Teya vinnur kortaupplýsingar. Ofurkaup fær aðeins færslunúmer, upphæð og hvort greiðsla tókst.
Seljendur: heiti fyrirtækis, kennitala, nafn, netfang og sími tengiliðs, bankareikningur fyrir uppgjör og skráning á samþykki samstarfsskilmála (hver samþykkti, hvenær, IP-tala og vafri).
Tæknilegar upplýsingar: IP-tala, tegund vafra og innskráningartímar, til að tryggja öryggi.
3. Tilgangur og heimild
Að afgreiða kaup, senda gjafabréf og veita aðgang að Mínum síðum. Heimild: samningur við þig.
Að gera upp við seljendur og halda bókhald. Heimild: samningur og lagaskylda samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.
Að svara fyrirspurnum, koma í veg fyrir svik og tryggja öryggi kerfisins. Heimild: lögmætir hagsmunir Ofurkaupa.
Að senda tilboðspóst. Heimild: samþykki þitt, sem þú getur dregið til baka hvenær sem er með einum smelli.
Að mæla árangur auglýsinga með Meta Pixel. Heimild: samþykki þitt í vafrakökuborðanum.
4. Hverjir fá upplýsingarnar
Seljandi sér netfang þitt eingöngu vegna gjafabréfa og pantana hjá honum, svo hann geti innleyst þau og veitt þjónustuna. Ef vara er send heim fær seljandi nafn, heimilisfang og síma viðtakanda og afhendir sendingaraðila það sem þarf til að koma vörunni til skila. Seljanda er óheimilt að nota upplýsingarnar í markaðsskyni.
Vinnsluaðilar sem vinna fyrir Ofurkaup samkvæmt vinnslusamningi: hýsing og gagnagrunnur, tölvupóstþjónusta og vefhýsing.
Teya er sjálfstæður ábyrgðaraðili fyrir vinnslu greiðsluupplýsinga.
Meta fær upplýsingar um heimsóknir og kaup aðeins ef þú hefur samþykkt markaðsvafrakökur.
Ofurkaup selur aldrei persónuupplýsingar.
5. Flutningur út fyrir EES
Ef vinnsluaðili geymir upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins er það gert á grundvelli staðlaðra samningsskilmála framkvæmdastjórnar ESB eða annarrar viðurkenndrar heimildar.
6. Varðveislutími
Aðgangur að Mínum síðum: þar til þú eyðir honum.
Kaup, gjafabréf og uppgjör: sjö ár frá lokum reikningsárs, vegna bókhaldsskyldu.
Samþykki fyrir tilboðspósti: þar til þú afskráir þig.
Öryggisskrár: tólf mánuðir.
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða eytt, takmarka vinnslu, flytja þær annað, andmæla vinnslu og draga samþykki til baka.
Sendu beiðni á info@ofurkaup.is. Við svörum innan mánaðar. Upplýsingum sem okkur er skylt að varðveita samkvæmt lögum er ekki hægt að eyða fyrr en varðveislutíma lýkur.
Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is) ef þú telur vinnsluna ekki í samræmi við lög.
8. Vafrakökur
Nauðsynlegar vafrakökur halda þér innskráðum og láta kaupferlið virka. Þær þurfa ekki samþykki.
Mælinga- og markaðsvafrakökur, þar á meðal Meta Pixel, eru aðeins virkjaðar ef þú samþykkir þær. Þú getur breytt valinu hvenær sem er undir „Vafrakökur“ neðst á síðunni.
9. Öryggi
Öll samskipti eru dulkóðuð. Aðgangi að gögnum er stýrt þannig að kaupendur sjá aðeins sín gjafabréf og seljendur aðeins gjafabréf hjá sér.
10. Breytingar
Við uppfærum stefnuna þegar þörf krefur. Nýjasta útgáfan er alltaf hér og verulegar breytingar eru tilkynntar.
Ofurkaup ehf. · kt. 460616-0690 · VSK-nr. 126042 · Smáratorg 3, 201 Kópavogi · info@ofurkaup.is