Samstarfsskilmálar seljenda
Fyrir fyrirtæki · Útgáfa 1.0 · Síðast uppfært 1. október 2026
Þessir skilmálar eru samningur milli Ofurkaupa og fyrirtækis sem selur gjafabréf eða vörur á ofurkaup.is (seljanda). Seljandi samþykkir þá við nýskráningu og samþykkið er skráð með dagsetningu og nafni þess sem samþykkti.
1. Aðilar og hlutverk
Ofurkaup ehf., kt. 460616-0690, rekur ofurkaup.is og selur gjafabréf og vörur seljanda í eigin nafni. Ofurkaup er seljandi gagnvart kaupanda, tekur við greiðslum og gefur út kvittanir.
Seljandi veitir þjónustuna eða afhendir vöruna og ber ábyrgð gagnvart Ofurkaupum á að hún sé í samræmi við tilboðið.
2. Þóknun
Ofurkaup tekur 18% þóknun af söluverði hvers gjafabréfs sem seljandi innleysir og hverrar vöru sem hann sendir eða afhendir. Virðisaukaskattur er innifalinn í þóknuninni.
Engin stofngjöld, mánaðargjöld eða önnur gjöld eru innheimt. Engin þóknun er tekin af gjafabréfum eða pöntunum sem eru endurgreidd áður en þau eru innleyst eða send.
Engin þóknun er tekin af sendingargjaldi. Það rennur óskert til seljanda.
Breyting á þóknun tekur aðeins gildi ef seljandi samþykkir hana sérstaklega.
3. Virðisaukaskattur og reikningar
Seljandi velur VSK-þrep (24%, 11% eða 0%) á hverju tilboði og ber ábyrgð á að það sé rétt samkvæmt lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Ofurkaup notar þrepið á kvittunum til kaupenda.
Í byrjun hvers mánaðar sendir seljandi Ofurkaupum reikning fyrir öllu sem var innleyst eða sent í mánuðinum á undan, á fullu söluverði með VSK í því þrepi sem valið var, auk sendingargjalda. Upphæðir, sundurliðaðar eftir þrepum, birtast í seljendagátt. Reikningurinn þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar.
Ofurkaup gefur út reikning til seljanda fyrir 18% þóknun af söluverði. Þóknunarreikningurinn er greiddur með skuldajöfnun á móti reikningi seljanda.
Ef vöru er skilað gefur seljandi út kreditreikning til Ofurkaupa fyrir heildarupphæðinni.
4. Uppgjör
Aðeins innleyst gjafabréf og sendar eða afhentar vörur fara í uppgjör. Seld gjafabréf sem hafa ekki verið innleyst eru hjá Ofurkaupum og eru ekki greidd út.
Hinn 25. hvers mánaðar greiðir Ofurkaup seljanda mismun reiknings hans og þóknunarreiknings Ofurkaupa: söluverð að frádreginni 18% þóknun, að viðbættum sendingargjöldum og að frádregnum skilum. Greitt er inn á bankareikning skráðan á kennitölu seljanda. Berist reikningur seljanda of seint færist útborgunin til næsta mánaðar.
Sundurliðun hvers uppgjörs, með hverju gjafabréfi, er aðgengileg í seljendagátt.
5. Innlausn
Seljandi innleysir gjafabréf aðeins þegar kaupandi fær vöruna eða þjónustuna. Innlausn er staðfesting seljanda á afhendingu og er ekki hægt að afturkalla.
Óheimilt er að innleysa gjafabréf án þess að varan eða þjónustan hafi verið afhent. Ofurkaup getur þá krafið seljanda um endurgreiðslu og lokað aðgangi hans.
6. Vörur, sendingar og skil
Seljandi velur hvort vara er send heim, sótt eða hvort tveggja, og ákveður sendingargjald og afhendingartíma. Þessar upplýsingar birtast kaupanda áður en hann greiðir.
Seljandi innleysir pöntun um leið og hann sendir vöruna, eða þegar kaupandi sækir hana. Óheimilt er að innleysa pöntun áður en varan er send. Send vara telst innleyst og fer í uppgjör.
Seljandi ber ábyrgð á sendingunni þar til kaupandi hefur fengið vöruna, og ber fulla ábyrgð á skilum og göllum samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga og lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.
Ef kaupandi skilar vöru eða á rétt á endurgreiðslu vegna galla ber seljandi kostnaðinn að fullu, þar með talið sendingargjald. Ofurkaup endurgreiðir kaupanda á kortið og upphæðin er dregin af næsta uppgjöri seljanda. Dugi uppgjörið ekki til skal seljandi greiða mismuninn innan 14 daga.
Þóknun Ofurkaupa fæst ekki endurgreidd þegar vöru er skilað eftir að hún hefur verið send eða afhent.
7. Tilboð
Seljandi ákveður verð, magn, sölutíma og gildistíma. Gildistími gjafabréfa skal vera að minnsta kosti sex mánuðir frá lokum sölu.
Uppgefið fullt verð skal vera raunverulegt verð sem seljandi hefur innheimt fyrir sömu vöru eða þjónustu. Lýsingar og myndir skulu vera réttar og ekki villandi.
Ofurkaup fer yfir tilboð áður en þau birtast og getur hafnað eða fjarlægt tilboð sem brjóta gegn skilmálum eða lögum. Seljandi getur stöðvað sölu hvenær sem er, en seld gjafabréf halda gildi sínu.
8. Skyldur seljanda
Að taka við gildum gjafabréfum út gildistíma þeirra og veita sömu þjónustu og öðrum viðskiptavinum.
Að senda vörur innan þess afhendingartíma sem kemur fram á tilboðinu og nota upplýsingar um viðtakanda eingöngu til að koma vörunni til skila.
Að hafa öll tilskilin leyfi og fylgja lögum sem gilda um starfsemi hans.
Að eiga rétt á öllum myndum, merkjum og texta sem hann setur inn.
9. Endurgreiðslur til kaupenda
Kaupandi getur fallið frá kaupum innan 14 daga ef gjafabréfið hefur ekki verið innleyst, og hætt við vörupöntun þar til varan er send eða sótt. Ofurkaup sér um endurgreiðsluna og ekkert fer í uppgjör.
Ef seljandi getur ekki tekið við gildu gjafabréfi, til dæmis vegna lokunar, endurgreiðir Ofurkaup kaupanda og gjafabréfið fer ekki í uppgjör.
10. Óinnleyst gjafabréf
Gjafabréf sem er ekki innleyst fyrir lok gildistíma fer ekki í uppgjör og upphæðin rennur til Ofurkaupa.
11. Persónuupplýsingar
Seljandi fær netfang kaupanda eingöngu til að innleysa gjafabréf og veita þjónustuna. Seljanda er óheimilt að nota það í markaðsskyni nema kaupandi hafi veitt honum samþykki sitt beint.
12. Kynning
Ofurkaup má nota heiti, merki og myndir seljanda til að kynna tilboð hans, meðal annars í auglýsingum á samfélagsmiðlum.
13. Gildistími og uppsögn
Samningurinn er ótímabundinn. Hvor aðili getur sagt honum upp með 30 daga fyrirvara. Seljandi skal áfram taka við seldum gjafabréfum út gildistíma þeirra.
Ofurkaup getur lokað aðgangi án fyrirvara ef seljandi brýtur gegn skilmálunum með verulegum hætti.
14. Ábyrgð
Ofurkaup ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni seljanda. Seljandi skal halda Ofurkaupum skaðlausum af kröfum kaupenda sem rekja má til vöru hans eða þjónustu, þar með talið vegna rangs VSK-þreps.
15. Breytingar, lög og varnarþing
Breytingar á skilmálunum eru tilkynntar með 30 daga fyrirvara. Um samninginn gilda íslensk lög og ágreiningsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Ofurkaup ehf. · kt. 460616-0690 · VSK-nr. 126042 · Smáratorg 3, 201 Kópavogi · info@ofurkaup.is